29.4.10

Blogghlé/leti!

Það er orðið ansi langt síðan ég bloggaði síðast, það er ekki svo með sagt að hér hafi ekki verið nóg að gera og ýmsu komið í verk.  Síðustu vikuna fyrir páska fór ég ásamt tveimur samstarfsmönnum mínum með 62 nemendur úr 9. bekk að Laugum í Sælingsdal.  Þar voru einnig 35 nemendur úr Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ ásamt 2 tveimur starfsmönnum þaðan.  Þarna vorum við í heila viku með þessa frábæru krakka sem nutu dvalarinnar í leik og starfi.  Ég tók náttúrulega prjónana með mér og prjónaði þennan snúna sjalkraga handa henni Ástu Maríu, mágkonu minni sem varð fimmtug þann 4.4.
Þegar heim kom fór ég beint í páskafrí sem var yndislegt, rólegheit og engin plön í gangi á heimilinu nema að njóta þess að vera saman, fara í göngutúra, borða góðan mat og hafa það sem allra best.
Við gerðum okkur þó ferð inn í Fljótshlíð (eins og sjálfsagt meira en helmingur landsmanna) til þess að sjá gosið á Fimmvörðuhálsi.  Við fórum með Þorkeli, Ástu, Jóni, Ástu Maríu, Helgu Dröfn, Lalla, Kristjáni, Árna Hlyni, Tómasi Snæ, Herði og Ástu Kristínu, takk fyrir yndislega ferð og samveru.  Þessi ferð var afmælisferð fyrir afa Kalla og fengum við að njóta með honum.  Ótrúlegt á að horfa þó úr fjarlægð væri (frá Þórólfsfelli).  Á meðan við vorum í Fljótshlíðinni var Kalli með vinum okkar Ellu, Garðari, Ingu og Einari ásamt fleirum uppi við sjálfar gosstöðvarnar.
Svo komu páskarnir með öllu tilheyrandi, páskaeggjum, góðum mat og frábærum brunch hjá afmælisbarni páskadags henni Ástu Maríu.
Ég er búin að hafa svo gaman af speglinum (sem ég nota sem bakka undir kertaglösin mín).  Nú var hann kominn í páskabúning en hægt er að sjá hann í haust- og jólabúningi í þessu bloggi http://siggalo.blogspot.com/2009/10/hausti-me-kertaljosum-inni-og-uti.html
Eftir að ég kláraði teppin, Flóafárið og teppið handa Þorra og Emmu, var ég bara lengi í gang aftur.  Nú er ég þó öll að koma til og er að prjóna þennan fallega sumarkjól handa Hildi Sögu minni og einnig er ég búin að kaupa í litla gollu við hann. 
Nú lofa ég sjálfri mér því að vera duglegri við bloggið, mér finnst þetta skemmtilegt og svo geta börnin mín stór og smá og aðrir ættingjar í útlöndum fylgst með og ég held bara að þau geri það:-) Bless í bili.

11 ummæli:

  1. Hlakka til ad sja fleiri blogg. Smart sidan svona i gulu og graenu:) Risa knuz fra stelpunni thinni- sakna thin :*:*

    SvaraEyða
  2. HAe....varstu buin ad sja hvad emma gerdi a facebook? Lol doddinn

    SvaraEyða
  3. Ef þú ert að meina myndirnar Þorri þá er ég búin að sjá þær, mjög flottar.

    SvaraEyða
  4. Flott ad thú ert farin ad blogga aftur. Ég aetladi ad fara ad setja á thig kröfu á eitthvad nýtt!

    Kv
    GM

    SvaraEyða
  5. Er búin að bíða spennt eftir nýju bloggi og nú get ég beðið spennt eftir að sjá kjólinn:D

    Sandra

    SvaraEyða
  6. Flottur sjalkraginn - er þetta möbius? Voða fallegir litir sem þú hefur valið í kjólinn. Alltaf gaman að skoða bloggið þitt, Sigga. Góða handavinnuhelgi!

    SvaraEyða
  7. Fallegir litir í kraganum, minna á eldgosið:) Mig langar svo að vita hvaða blað þetta er sem kjóllinn er í, núna er ég svo spennt fyrir sætum kjólum........á litlar stelpur.....Vona að þú hafir notið vikunnar með mínum eiginmanni, ekki fékk ég þinn í staðinn :(

    SvaraEyða
  8. Já Sandra, ég hef ekki verið eins dugleg við prjónana eins og ég ætlaði en þetta mjakast og þú færð að sjá hann fyrr en varir.
    Hellen, já þetta er Möbius kraginn, ég prjónaði hann úr Kauni garni, notaði akkurat 1 hnotu.
    Anna Björg, kjóllinn er úr blaði sem heitir Mandarin barn (0904 barn) ég keypti það í Fjarðarkaup. Ég skil vel að þú sért farin að kíkja eftir uppskriftum af telpnafötum;-)

    SvaraEyða
  9. Blessuð Sigríður, ég rakst á blogg þitt í gegn um eitthvert annað blog, og þar sem við báðar búum í Hafnarfirði og virðum eiga það sameignlegt að hafa farið á saumhelgina hjá Guðrúnu Erlu og hafa afrekað það að klára Flóafárið - ég er nú mjög sátt við mitt.......en annað eigum við sameiginlegt er hún Ásta María þín, hún er skólasystir mín úr Versló - viltu skila góðri kveðju til hennar frá mér og hamingjuóskir með stórafmælið um daginn
    Kveðja Fríða Ágústsdóttir
    bloggið mitt
    handavinnufrida.blogspot.com

    SvaraEyða
  10. Takk sömuleiðis fyrir góða ferð austur í Fljótshlíð...

    Gaman að sjá öll bloggin sem ég hef greinilega vanrækt að kíkja á!! :)

    Kveðja Helga Dröfn

    SvaraEyða
  11. Nýtt blogghlé?

    Sandra

    SvaraEyða