4.2.12

Bútasaumur

Ég gerði svona snyrtibuddur/pennaveski fyrir jólin og gaf í jólagjafir.  Ég reyndi að velja efnin og litina eftir þeim sem áttu að fá þær t.d. fékk Sæunn bróðurdóttir mín þessa grænu og fyllti ég hana af allskonar snyrtidóti og svo setti ég ég "bókaorm" sem er bókamertki með þessu þar sem hún er svoddan bókaormur;-)
Á myndinni sést hvernig þetta er gert, fyrst saumar maður ræmur beint á bak.
Þessa bláu fékk hún Sigrún Ingibjörg bróðurdóttir mín.  Ég fyllti þessa líka með ýmsum snyrtivörum og bókamerki, því hún er líka mikið fyrir lestur.
Hér er ég búin að sauma budduna saman en er að setja í hana rennilás og snýr rangan út.
Þessa hér fyrir neðan gerði ég reyndar fyrst þannig að hún er prufan!  Hana ætla ég að eiga og fyllti hana af ýmiskonar pennum og nota hana sem pennaveski. Á þessari mynd er buddan/veskið fullgert.
Þessu teppi byrjaði ég á fyrir löngu síðan en það varð ekkert úr því að ég kláraði það.  Nú er Hildur mín Saga að verða fjögurra ára og fannst mér það vera allt of lítið fyrir hana.  Ég tók mig til og stækkaði það um eina mynsturrönd og bætti húsinu þar inn. Teppið heitir að mig minnir Dýrin í sveitinni.
Þetta er lúrteppi fyrir hana, mátulega stórt til að setja yfir sig í sögustund með pabba og mömmu.
Set eitthvað fleira hér inn eftir því sem tími leyfir.  Takk fyrir innlitið. 


8 ummæli:

  1. Fínt að kúra undir svona lúrteppi:)

    SvaraEyða
  2. Teppið fallegt, Sigga, gaman að sjá íslenskt munstur. Góðir litir líka. Pennaveskin líka fín.

    SvaraEyða
  3. Flott að sjá húsið í teppinu, er líka að gera snyrtibuddur úr sama sniði og þú en lengdi það um 3cm og fæ gott snyrtiveski, auðvelt og þægilegt snið.
    Kveðja

    SvaraEyða
  4. Það er ofboðslega gaman að sjá þessa hluti verða til.

    SvaraEyða
  5. Teppið mitt, hrópaði Hildur Saga glöð þegar við lásum bloggið í dag :)

    Hildur Saga og Gulli (H.S. skrifað nafnið sitt sjálf!)

    SvaraEyða
  6. Sæl Sigríður,
    skemmtilegt bloggið þitt. Fallegar snyrtibuddur og dýrateppið alveg hreint dásamlegt :)
    Bkv.
    Berglind Snæland

    SvaraEyða
  7. Sæl Sigríður
    Ég var að skoða bloggið þitt í fyrsta skipti. Mikið gerir þú fallega hluti. Ég mun sko kíkja reglulega við hér. :) Teppið er rosalega fallegt og buddurnar sætar. Ég er tiltölulega nýbyrjuð í bútasaum og langar að vita hvar ég get nálgast sniðið að þessum snyrtibuddum, þær eru svo dásamlegar. :)
    Kv. Guðný.

    SvaraEyða
  8. Sæl Guðný og takk fyrir hrósið.
    Ég keypti þetta snið í Bót á Selfossi. Ég hef einnig séð það í Quiltkörfunni í Faxafeni. Bót er ekki lengur starfandi sem verslun en er með netverslun og þú gætir athugað hjá þeim á bot.is
    Vona að þetta gagnist þér ;-)
    Og velkomin í bútasaumshópinn.
    Kveðja
    Sigga

    SvaraEyða