15.9.09

Þá er hann Kalli minn sáttur.

Jæja þá er ég loksins búin með peysuna hans Kalla míns. Hann er búinn að bíða allt of lengi eftir henni. Ég prjónaði hana um verslunarmannahelgina en átti eftir að ganga frá henni, klippa og setja rennilásinn í. Ég er búin að kvíða því að gera þetta því ég hef aðeins einu sinni áður sett rennilás í peysu og var ekkert sérstaklega ánægð með útkomuna. En nú er ég búin og gekk bara nokkuð vel.
Og Kalli minn er sáttur!

3 ummæli:

  1. kúl, áttu efnivið í aðra? :)

    SvaraEyða
  2. Þú getur verið stolt af þessari peysu, Sigga, hún er mjög falleg hjá þér og drengurinn flottur!

    SvaraEyða