19.2.10

Þetta mjakast ;-)

Svona er staðan með teppið þeirra Þorra og Emmu. Fyrsta myndir sýnir þegar miðjan og næstu tvær raðir voru komnar saman.
Hér hefur svo aðeins bæst við og ágætis mynd komin á það.
Sú síðasta sýnir hver staðan er í dag, miðjan tilbúin þ.e. munsturhlutinn, bara eftir að sauma tvö horn við. Þá er að byrja á köntunum sem eiga að vera utan um allt teppið en þeir eru í þremur litum.

2 ummæli:

  1. Þetta verður svo rosalega flott mamma, ekkert smá sem þú ert búin að vera dugleg að sitja við. Kemur mjög flott út! ÁSM

    SvaraEyða
  2. Þetta kemur mjög vel út, fallegir litir og fallegt munstur, hlakka til að sjá það fullklárað.

    SvaraEyða