25.10.09

Ein græn og væn .

Bara svona að gamni þá set ég inn myndir af Hildi Sögu minni í nýju lopapeysunni sem ég var að klára. Kalli fór í gærmorgun til Stokkhólms á tónleika með Muse og gistir í Eskilstuna hjá litlu fjölskyldunni og fyrst að ferð féll var ekkert annað í stöðunni en klára peysuna. Í mynstrinu áttu að vera ljósbláar klukkur en ég breytti því og notaði fjólubláan lit. Kemur bara vel út.
Sú stutta er nú ekki amalegt módel.
Það er svolítill sláttur á minni á þessari mynd.

3 ummæli:

  1. Það er bara svo mikið að gera hjá henni:) Peysan er æðisleg, og klæðir litlu snuddustelpuna okkar vel:) Þú ert listakona!

    SvaraEyða
  2. Peysan er algjört æði EN ég er ekki frá því að meistaraverkið mitt sé ennþá stórkostlegra;P

    Sandra

    SvaraEyða
  3. haha Sandra ég er ekki frá því að meistaraverkið þitt sér stórkostlegt:)

    SvaraEyða