9.3.09

Ósköp gengur þetta hægt hjá mér

Ég er nú búin að vera að stinga epladúkinn mörg kvöld í röð og mér finnst ég ekkert komast áfram. Í dag sat ég í marga klukkutíma og er ekki hálfnuð. Á eina og hálfa hlið eftir og alla miðjuna. Þetta reynir dálítið á þolinmæði mína (sem er kannski ekki mikið til af svona venjulega) en ég sé fram á það að vera minnst 2 kvöld í viðbót. Markmiðið er að klára þetta og koma mynd á netið fyrir föstudaginn því þá ætla ég á námskeið. Fékk inni á námskeiði hjá Guðrúnu Erlu á Selfossi bæði föstudag og laugardag. Við Maggi erum búin að fá bústað í Grímsnesinu um helgina. Hlakka mikið til!
En held áfram að stinga :-(

4 ummæli:

  1. Þetta verður æðislega gaman hjá ykkur:) Hlakka svo mikið til að sjá teppið!!!
    Knús:*

    SvaraEyða
  2. P.s. hér er áfylling á þolinmæðistankinn:*

    SvaraEyða
  3. Skil þig! Þetta getur verið tímafrekt og líka erfitt, en svo er maður voða glaður þegar þetta er tilbúið! Gangi þér vel!

    SvaraEyða