18.4.09

Sumardúkur

Jæja þá er að hefjast handa. Mig langar svo að sauma sumardúk. Sólarlegir litir er það ekki í bland við græna sumarlega. Mér áskotnaðist forrit til þess að búa til mynstur og er búin að sitja við það núna undanfarna daga, það er að læra á forritið og síðan að hanna mynstur.
Dúkurinn á að vera um 70 x 70 sm. Aldrei að vita hvernig þetta verður hjá mér.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli