18.4.09

Sumardúkurinn góði

Jæja þá er ég búin með blokkina sem ég ætla að hafa á miðjunni á dúknum, bara nokkuð sátt nema með miðjuna :-( finnst hún dálítið úr lit. Er þetta kannski páskadúkur? Nei er það?

En nú er bara spurning hvort ég noti þetta efni til þess að hafa utan með? Mér finnst það mjög fallegt en ætla að sofa á því í nótt. Hvað finnst ykkur sem kannski lesið þetta?

1 ummæli:

  1. Fallegir litir, mér finnst efnið sem þú ætlar að hafa utan um passa fínt. Var fyrst sammála þér með litla bútinn en er eilega búnað semja frið við hann:)Ha-ha!
    Verður fallegur sumardúkur:)

    SvaraEyða